|
22.04.2006 20:06:18 / inadogg
Erum búin að skipta um síðu....endalaus vitleysa og rugl.
Áttum að skipta yfir á eitthvað annað kerfi og gátum ekki komist
inn á síðuna okkar án þess að skrá okkur þar....endalaus
vitleysa. $%$&%&(%$##$#!""##$......
Nýja síðan er http://beesina.wordpress.com
Endilega látið alla vita.......
Ína og Bjössi
»
16.04.2006 20:38:44 / Beesinn
Komum heim frá Svíþjóð um kl.17:00 í dag.
Öll ferkar þreytt og í kvöld verður farið snemma í háttinn.
Finnum okkur tíma fljótlega til að skrifa ferðasöguna.
»
13.04.2006 05:27:54 / Beesinn
Biðjum að heilsa og verðum komin aftur á sunnudag. Bæ bæ.
»
12.04.2006 20:16:05 / Beesinn
Mér samdist við eiganda af hjóli sem ég er búinn að spá mikið í
síðustu vikurnar.
Eftir páska verður svo gengið frá sölunni og hjólið verður fomlega
mitt.
Þetta er Yamaha XJ 900, sem er 900 cc. og 98 hö. Þetta er
svolítið stórt hjól en þetta er eðal ferðahjól til að nota á
motorvej´inn hér og það dugar líka vel á autobanen í Þýskalandi þar
sem topphraðinn á þessu hjóli er um 220 km.
Hér er linkur á síðu sem er með mynd af svona hjóli og fullt af
upplýsingum.
http://www.bikez.com/bike/index.php?bike=12607
Það eru ferðatöskur á hjólinu mínu eins og eru á hjólinu í
myndinni.
Svo eftir páska set ég inn myndir.
Ps. þið verðið að copy´a linkin yfir það virkar ekki að smella.
»
09.04.2006 13:45:51 / inadogg
Allt er orðið rosalega fínt hjá okkur. Mamma og pabbi eru að
koma í kvöld og svo koma foreldrar hans Bjösssa í næstu viku.
Þannig að við ákváðum að grípa tækifærið í tilefni þessara
heimsókna og gera ýmislegt hér heima sem við höfum verið að fresta,
s.s. að fara með ýmislegt í kompuna og ganga frá ýmsu dóti.
Nú er allt orðið rosalega fínt, allt á sínum stað, fullt af krókum
og snögum komið upp, vetrarföt komin í kompuna ásamt auka verkfærum
og ýmsu dóti, búið að þvo þvott og kaupa ávexti og blóm. Allt
tilbúið. Núna mega gestirnir fara að koma
»
07.04.2006 19:54:32 / Beesinn
Við vorum rosalaega íslensk í kvöld. Við tókum grillið út úr
kommpunni og grilluðum. Langt á undan öllum öðrum.
Daninn grillar á sumrin.
Nágranin minn var úti að labba með litla barnið sitt og spurði mig
hvort það væri tími til að grilla. Ég sagði honum bara að það
væri kannski ekki kominn tími á þetta en þetta væri bara svo gaman
að grilla.
Hann brosti bara, hvort sem það var vegna þess að honum fannst
þetta sniðugt eða bara því að hann heldur nú að ég sé klikk.
»
06.04.2006 18:51:34 / Beesinn
Vorum að klára vegginn og búin að setja inn myndir af
framkvæmdinni.
»
05.04.2006 18:18:23 / inadogg
»
03.04.2006 17:40:58 / Beesinn
Ég eyddi allri helginni í að smíða vegg á bakhliðina á fataskápnum
okkar. Með þeim tilgangi að geta hengd upp sjónvarpið okkar
og fela allar snúrur inn í veggnum.
Núna er þetta langt komið og er ég búinn að mála fyrstu umferð.
Þetta er allt annað og meira pláss hjá okkur í sjónvarpshorninu
okkar.
Setjum inn myndir þegar verkið er búið.
»
30.03.2006 17:42:22 / Beesinn
Þeir sem reyndu fyrir sér í að skjóta á hvenær vorið gengi í garð
hér höfðu ekki rétt fyrir sér.
40 % sögðu 20 mars
60 % sögðu 1 apríl
En það gekk í garð 26 mars og er þar að leiðandi komið. Ég
fékk e-mail frá henni Heru í Alaborg og hún sagði að vorið kæmi 23
mars, svo það lítur út fyrir að hún hafi verið hvað næst því.
Til hamingju með það Hera
»
30.03.2006 17:34:48 / Beesinn
Ég var að setja sumardekkin undir mótorhjólið. Núna getur
maður keyrt hratt... eða hraðar, þetta er jú bara lítið
mótorhjól. En ég get farið að æfa mig í að leggja það í
beygjur og svoleiðis. Bara gaman.
»
27.03.2006 18:48:08 / inadogg
Vorið er formlega komið í Danmörku. 12 stiga hiti og rigning
í dag og núna klukkan níu um kvöldið er 10 stiga hiti. Kominn
tími til.
En um allt annað......
Við leigðum okkur bíl um helgina og keyrðum til Þýskalands á
laugardaginn og fylltum bílinn af bjór og víni. Munar alveg
fullt á verðinu og allt fullt af brjáluðum Dönum að fylla bílana
sína af bjór og sælgæti.
Svo skruppum við til Odense til Álfheiðar og Vals (æskuvinkona mín)
Þau keyptu sér æðislegt hús rétt fyrir utan miðbæinn og eru að koma
sér fyrir þar. Kjallari og tvær hæðir, garður og róleg
gata. Rosalega flott.
Við borðuðum með þeim og sátum svo og spjölluðum fram eftir og
fengum svo að gista. Daginn eftir var planið að kíkja aðeins
í bæinn en klukkan tvö uppgötvuðum við (af því að mamma hans Vals
hringdi) að klukkan var þrjú. Við þurftum því að bruna til
Arhus til að skila bílnum. En allt gekk vel og þetta var
rosalega gaman. Svo er alvara lífsins bara tekin við aftur og
skólinn byrjaði aftur hjá mér í dag. Tvö síðustu fögin áður
en ég get farið að taka valfög.....alveg að verða búið. Meira
seinna.
Ína í sumarskapi
»
26.03.2006 17:02:22 / Beesinn
Við komum heim áðan og skiluðum leigubílnum og mælirinn sýndi 579
km eftir 2 daga.
»
24.03.2006 07:07:18 / inadogg
Er að fara í seinna prófið á eftir. Búin að lesa yfir allt
efnið aftur, en skil ekki enn þá almennilega hvernig hann ætlar að
prófa úr þessu.....en það kemur víst í ljós á eftir. Svo verð
ég barasta sótt upp í skóla á BÍL. Bjössi sækir
bílaleigubílinn á eftir og við ætlum pottþétt að nota tækifærið og
fylla alla skápa og geymslur af dósamat og öðru sem geymist.
Þá er minna að bera úr búðinni næstu vikur 
Óskið mér góðs gengis og sendið mér fullt af
"alþjóðlegumbókhaldsreglu-straumum" milli klukkan 13-16 í dag
(12-15 íslenskur tími)
Ína að fara í próf
»
23.03.2006 20:29:14 / Beesinn
... til að læra um pípulagninartöng, sleggju og hamar?
Ég fór til meistara míns í dag því ég þurfti að tengja saman keðju
og fram til þessa hafið ég alltaf notað keðjulás sem er mjög
einfaldur að nota, bara eitt splitti og keðjan er klár. En í
dag var ég með keðjuhlekk sem þarf að kremja saman, en það hafið ég
ekki gert áður. Ég vissi að það þyrti að nota eitthvert
sérverkfæri svo ég hóaði í Paul og hann kom til mín með
pípulagninartöng.
Ég horfði sérkennilega á hann og hann stakk upp á því að við
notuðum sérverkfærin sem framleiðaninn af keðjunum seldi
honum. Paul sagði að honum finntist þó best að nota
röratöngina.
Eftir af hafa notað sérverkfærin til að kremja keðjuna saman þá
þurfti að merja endana á hlekknum til að loka hlekknum. Það
eru til sérverkfæri til fyrir það líka en Paul sýni mér að það er
mikið auðveldara og betra að nota sleggju og hamar.
Eftir að hann hafði sýnt mér þessa aðferð án þess að nota
sérverkfæri þá sagði ég við hann að ég hafi nú komið alla leið frá
Íslandi til að læra allar þær séraðferðir sem þarf til að laga
mótorhjól og núna sé ég að þetta er bara unnið með röratöng,
sleggju og hamar.
Hann hló vel af þessu og ég bætti nú við að ég væri bara að grínast
en það er oft sem okkur er hætt við að halda að hlutirnir séu
flóknari en þeir eru í raun.
»
Síður: 1 2 3 ... 13
|